Færsluflokkur: Bloggar

Ferðalag í átt að breyttri og bættri líðan.

Markmiðið er að gera það sem við getum til að okkur líði betur á sál og líkama á hverjum degi.

 

Ferðalagið sem við erum að fara í þarf ekki að vera leiðinlegt eða þreytandi. Þetta verður skemmtilegt og krefjandi, og umfram allt árangursríkt. En það er sama hvað við tökum okkur fyrir hendur – allt sem við gerum byggir á okkar eigin elju, framkvæmdasemi, dugnaði og jákvæðu hugarfari. Umfram allt jákvæðu hugarfari. Svona ferðalag getum við ekki farið í ef hnefinn einn á að ráða för. Við erum að gera þetta fyrir okkur og okkar heilsufar.

 

Við erum hér á okkar eigin forsendum, hver fyrir sig. Sumar okkar vilja létta sig, aðrar styrkja. En hverjar svo sem forsendur okkar eru, þá erum við hér, allar saman og heildarmarkmið okkar er það sama - að gera það sem við getum til að okkur líði betur á sál og líkama á hverjum degi. Annars værum við ekki hér. Styðjum hverja aðra, brosum og höfum gaman að þessu.

 

Hér eru nokkrir punktar sem ég hef sett upp. Það er mjög gott að hafa þessa punkta uppivið, þar sem við sjáum þá og getum lesið og gripið í hvenær sem er.

 

©     Breytt og bætt líðan er til frambúðar. Ekki til næstu fjögurra eða sex vikna. Þetta er ferðalag til framtíðar.

©    Það þarf að setja sér skýr og raunhæf markmið. Markmiðið er fyrst og fremst breytt og bætt líðan.

©     Til að ná árangri þarf fyrst og fremst vilja og ástundun. Það þarf reglulega hreyfingu og reglubundið mataræði. Ekki að byrja of geyst og ekki að ætla sér um of. Þetta ferðalag á að endast.

©     Líkaminn er um það bil þrjár vikur að aðlagast breytingum sem við gerum. Ekki einn dag – ekki eina viku – heldur þrjár vikur. Ekki gefast upp.

©     Hlustaðu á líkama þinn. Ekki ofgera þér. Það er ekkert haft með því að æða af stað af fullum krafti og ofgera sér svo – og jafnvel missa tökin og áhugann. Þetta á að vera gaman.

©    Þetta ferðalag á ekki að vera erfitt eða leiðinlegt. Í raun eru engin boð eða bönn og samviskubitunum skulum við pakka saman og geyma niðri skúffu. Ekki fá samviskubit yfir því að hafa kannski borðað meira en þú ætlaðir þér í einhverri máltíð eða ef þú færð þér eitthvað sem þú ekki ætlaðir þér. Rístu upp og haltu áfram ferðalaginu.

©     Láttu ekki eitt „hliðarspor“ draga þig niður. Það er ekkert eyðilagt þótt ein kexkaka eða einn súkkulaðibiti detti upp í þig þótt þú hafir alls ekki ætlað þér það. Passaðu þig á því að detta ekki niður í hugsanir eins og „þetta er hvort sem er allt ónýtt, ég get alveg eins klárað allan pakkann“. Svona hugsanir kalla á fleiri neikvæðar hugsanir og niðurrifsstarfsemi heilans fer í gang. Við erum sérfræðingar margar hverjar í að skamma okkur sjálfar og rífa okkur niður þegar við stígum þetta svokallaða hliðarspor. Það er ekkert ónýtt.

©     Þú verður líka að leyfa þér eitthvað – mundu það. Finndu þér þín mörk.

©     Það sem er liðið er liðið. Það sem þú borðaðir í gær eða sófaslenið sem yfirtók þig í gær – það var í gær. Ekkert sem þú gerir í dag getur breytt því. Það tilheyrir fortíðinni. Hins vegar getur þú breytt og bætt og haft áhrif á það sem þú gerir í dag. Og það er akkúrat planið. Hugsaðu um daginn í dag og láttu ekki gærdaginn draga úr þér mátt, jákvæðni og ánægju dagsins í dag.

©     Ekki eyða orkunni í að hafa áhyggjur af morgundeginum. Vertu í deginum í dag. Sumum reynist þetta nógu erfitt og hugsa klukkustund fyrir klukkustund.

©     Miðaðu við að borða ekki færri en fjórar máltíðir á dag. Morgunmat, hádegismat, miðdegishressingu og kvöldmat. Sumir þurfa fleiri máltíðir, sumir þurfa færri. Leitaðu að þínu jafnvægi.

©     Ekki sleppa úr máltíð – aldrei.

©     Fáðu þér einu sinni á diskinn í hverri máltíð.

©     Borðaðu meira af grænmeti og grófu korni.

©     Minnkaðu til muna það sem þú innbyrðir af hvítum sykri – jafnvel hveiti. Sumir lesa innihaldslýsingu á „öllu“ sem þeir kaupa og ef sykur er í fyrstu fjórum sætunum þá er viðkomandi tegund látin eiga sig. Þú finnur þín mörk.

©     Leitaðu ráða og spurðu spurninga. Ef þú spyrð ekki, þá veistu ekki. Engin spurning er ómerkileg. Það sem þú ert að gera er stórkostlegt – þú ert að hefja ferðalag þar sem þú og heilsan þín er í forgangi. Þú átt skilið allt það besta.

©     Því fyrr sem þú viðurkennir þína eigin veikleika og að þú ert ekki fullkomin, þú ert mannleg vera en ekki vélmenni, þá mun ferðalagið verða ánægjulegra og leiðin greiðari.

©     Mundu að við erum öll þrælar vanans. Allt í okkar lífi snýst um vana. Það sem við höfum einu sinni vanið okkur á – það getum við líka vanið okkur af!

©     Það sem hentar einum hentar ekki endilega öðrum. Hver og einn þarf að finna sína leið. Hvernig er best fyrir þig að breyta og bæta líðanina? Hvað hentar þér?

©     Gangi þér vel í ferðalaginu þínu og skemmtu þér. Þetta er gaman og þetta er gott!

 

Ást og kærleikur

Berglind

 

 


Áramótakveðja

cat_4

Elsku yndislegu blómin mín,

Mig langar til að senda ykkur mínar innilegustu og ljúfustu kveðjur með ósk um að árið 2011 verði ykkur kærleiksríkt og gott.

Árið sem nú er að kveðja okkur hefur verið ágætt. Yndislegar konur iðkuðu líkamsræktina sína í hópnum mínum og get ég með stolti sagt að árangur þessara kvenna er flottur. Ég mæli árangur þeirra ekki út frá því hvort sentimetrum eða kílóum fækkaði, heldur met ég árangur þeirra út frá því hvernig þær hugsa um sjálfar sig, hvernig þær bera sig, hvernig þeim líður andlega.

Markmið okkar númer eitt, tvö og þrjú er að líða vel í eigin líkama. Vera stoltar af okkur sjálfum og sáttar við eigin gjörðir og verk. Bera virðingu fyrir okkur sjálfum, brosa mót eigin spegilmynd á hverjum degi og hugsa jákvætt.

Hugsa út frá lausnum en ekki út frá vanda. Oft stöndum við frammi fyrir því að hlutirnir fara ekki eins og við óskuðum eftir. Þá þurfum við styrk til að bregðast við og finna lausn. Þennan styrk ætlum við að finna og varðveita. Ég hef stundum sagt að það séu ekki til nein vandamál heldur aðeins lausnir.  

Horfum með bjartsýni og jákvæðni yfir til ársins 2011 og gerum okkar allra besta til að setja okkur sjálfar í forgang, hugsa um heilsuna - því við eigum bara eina heilsu - og brosa, gefa af okkur af kærleika og gleði.

 

Njótið áramótanna hvar sem þið verðið og hvað sem þið munið hafa fyrir stafni.

 

Ást og friður

Berglind


Jólin handan við hornið

 

Hver er sinnar gæfu smiður. Þú þarft að vera sáttur við sjálfan þig til að geta verið sáttur við lífið. Það eru ekki aðrir sem gera okkur hamingjusöm, við sköpum okkar eigin hamingju. Ef við erum hamingjusöm í því sem við erum að gera, þá munum við ljóma og vaxa í lífi og leik. Við munum öðlast betri hæfni til að gefa af okkur kærleika og hlýju.

 

Við berum öll ábyrgð á okkar eigin innri líðan, okkar eigin hamingju, okkar eigin viðbrögðum. Við getum aldrei komið þessum hlutum yfir á aðra og gert aðra þar með ábyrga fyrir því sem við gerum. Við stjórnum okkur sjálf og aðrir stjórna sjálfum sér. Þar liggur jafnvægið í samskiptum milli fólks. Það er að fara svo dásamlegur tími í hönd, tími samskipta og nærveru. Við ættum öll að huga að því að koma fram við aðra eins og við viljum að komið sé fram við okkur :)

 

Nú eru jólin rétt handan við hornið. Það gefur okkur tækifæri til að gefa af okkur af kærleika og af hlýju. Bestu gjafirnar sem við gefum eru ekki veraldlegs eðlis heldur er það kærleikur og væntumþykja.

 

Hugsum um kærleikann fyrst og fremst því það er heila málið. Þegar upp er staðið þá er það kærleikur og hlýja sem gefa okkur möguleika á hamingju.

 

Ég ætla að láta fylgja hér litla sögu sem ég fann á netinu um daginn og mér finnst eiga heima í okkar þjóðfélagslegu aðstæðum í dag.

 

Njótum lífsins og njótum dagsins, með hvert öðru, fyrir okkur sjálf og fyrir kærleikann.

 

"Maður nokkur refsaði 3ja ára gamalli dóttur sinni fyrir það að eyða heilli rúllu af gylltum pappír. Ekki var mikið til af peningum og reiddist hann þegar barnið reyndi að skreyta lítið box til að setja undir jólatréð.

 

Engu að síður færði litla stúlkan föður sínum boxið á jóladagsmorgun og sagði: "Þetta er handa þér pabbi". Við þetta skammaðist faðir stúlkunnar sín fyrir viðbrögð sín daginn áður. En reiði hans gaus upp aftur þegar hann áttaði sig á því að boxið var tómt. Hann kallaði til dóttur sinnnar, "veistu ekki að þegar þú gefur einhverjum gjöf, þá á eitthvað að vera í henni?"

 

Litla stúlkan leit upp til pabba síns með tárin í augunum og sagði: "Ó pabbi boxið er ekki tómt. Ég blés fullt af kossum í það. Bara fyrir þig pabbi." Faðirinn varð miður sín. Hann tók utan um litlu stúlkuna sína og bað hana að fyrirgefa sér.

 

Það er sagt að mörgum árum seinna, þegar faðir stúlkunnar lést, og hún fór í gegnum eigur hans hafi hún fundið gyllta boxið frá því á jólunum forðum við rúmstokkinn hans, þar hafði hann haft það alla tíð; þegar honum leið ekki vel gat hann tekið upp ímyndaðan koss og minnst allrar ástarinnar sem barnið hans hafði gefið honum og sett í boxið.

 

Í vissum skilningi höfum við allar lifandi mannverur tekið á móti gylltum boxum frá börnunum okkar, fjölskyldum og vinum, fullum af skilyrðislausri ást og kossum. Það getur enginn gefið dýrmætari gjöf.

 

Í dag skaltu gefa þér augnablik og njóta stórrar handfylli af minningum og mundu að þær verma hjarta þitt og bráðna þar, en ekki í höndum þínum."

 


BBL Breytt og bætt líðan

Nú er námskeiði haustsins að ljúka á næstum dögum.

Smávægis breytingar frá skipulagi haustsins munu verða á nýju námskeiði eftir áramótin. Fjóla mun ekki kenna ásamt Berglindi heldur mun Berglind verða ein.

Viltu bæta andlega og líkamlega líðan þína?

 

©       Persónuleg og einstaklingsmiðuð þjónusta

©       Aðhald, stuðningur, hvatning, fræðsla

©       Fjölbreytt hreyfing - 4 sinnum í viku, 1x sund, 1x kósý, 2x fjölbreytni

©       Styrkjandi og liðkandi æfingar, m.a. fit-pilates

©       Góðar æfingar - engin hopp og högg

 

©       Aðstoð við að skipuleggja máltíðir dagsins og skammtastærðir

©       Aðstoð við raunhæfa markmiðasetningu - eitt skref í einu

©       Alltaf opið fyrir nýja þátttakendur

©       Ýmsar skemmtilegar uppákomur og mikil fjölbreytni

©       Hentar ekki síður konum sem ekki hafa verið í þjálfun lengi eða aldrei

 

Fyrsti tími á nýju ári verður miðvikudaginn 5. janúar kl. 17:00

 

Mánudagar 17:15  SUND

Þriðjudagar 17:00  FJÖLBREYTNI

Miðvikudagar 17:00 KÓSÝ

Fimmtudagar 17:00 FJÖLBREYTNI

 

a)       3 mánuðir (jan, feb, mars)

b)       5 mánuðir (jan, feb, mars, apr, maí)

 

Markmiðið er að okkur líði vel með okkur sjálfar, hugsum jákvætt, aukum sjálfstraustið og í leiðinni að við náum tökum á mataræðinu og þyngdinni - án megrunarsjónarmiða. Einungis heilbrigð skynsemi og jákvætt hugarfar með í för.

 

Við ætlum að breyta um lífsstíl og læra að gera hreyfingu og reglulegt mataræði að sjálfsögðum hlut í okkar lífi. Einblínum ekki á vigtun og mælingar heldur vinnum við útfrá raunhæfum markmiðum og hugsum um eitt skref í einu. Hugsað verður ákaflega vel um allar konur, mikil alúð og skýr hugsjón.

 

Hafðu samband við Berglindi sem fyrst í síma 891-6901 eða e.berglind@simnet.is

 

Forgangsraðaðu og settu sjálfa þig í fyrsta sæti !

 

Hlakka til að sjá þig

Berglind hefur langa og góða reynslu af kennslu í blönduðum hópum auk fit-pilates kennslu.

 

 

 

 

 

 


Hvað er að frétta?

Berglind i 

Góðan dag elsku fallegu Rósir.

Upp er runninn enn einn föstudagurinn. Er ekki alveg magnað að það séu eiginlega bara tveir vikudagar í viku hverri? Föstudagur og mánudagur?

Það er skrýtið andrúmsloft sem liggur yfir öllu þessa dagana finnst mér. Ótrúlegasta fólk er í lægð dögum saman. Ég hef heyrt í konum undanfarið sem segjast jafnvel aldrei áður hafa sokkið jafn langt niður og núna.

En hvað er að valda þessari ógurlegu lundarfarslegu lægð? Allt og auðvitað ekkert líka. Það þarf ekkert alltaf að finna endalausar skýringar og ástæður fyrir öllu. Stundum líður okkur bara hreinlega ekki vel og við þurfum ekkert endilega að kryfja það til mergjar. Við þurfum að vera meðvitaðar um að við megum eiga okkar niður daga, það er enginn heimsendir, en við verðum líka að vera meðvitaðar um það að við þurfum að fara upp úr lægðinni líka. Lægðir eru ekki komnar til að vera - munið það!

Ég hef sagt ykkur frá mörgum misjöfnum köflum úr mínu lífi og líf mitt hefur verið ansi hreint skrautlegt. Ég hef hoppað á milli þess að vera kát og glöð og þess að vera döpur og leið og með engan lífsvilja.

En í dag sit ég og hugsa (í staðinn fyrir að festa hugann við námsbækurnar - hahhh! já, líkt mér að finna mér eitthvað annað að gera en að læra......!) svo mikið að mig verkjar, hugsa til þeirra sem ekki líður vel. Hugsa til allra þeirra sem á þessari stundu eiga í baráttu við sjálfa sig og sjá ekki neinn tilgang með neinu. Úff,  - ég var þarna sjálf. Ég var á þessum sama stað. Ég sat meira og minna í þessum sömu sporum í hátt í þrjá áratugi. Bíddu, ertu hundrað ára? Nei, nefnilega ekki. Ég er þrjátíu og níu ára og hef eytt mest öllum árum lífs míns í baráttuna um það að ákveða hvort þetta allt sé virkilega þess virði. Ég hef fundið svarið og svarið er já. Lífið er þess virði.

Það er tvennt sem stendur upp úr svona eftir á sem hefur haldið í mér lífinu og komið mér á þann stað sem ég er á í dag.

Í fyrsta lagi eru það yndislegu börnin mín og yndislega fjölskyldan mín. Börnin mín hef ég alltaf haft hjá mér, en fjölskyldunni hef ég reynt að ýta frá mér með misgóðum árangri. En þau fóru aldrei, voru skammt undan - sem betur fer. Ég einangraði mig frá öllu og öllum. En í raunni má kannski segja að ég hafi einangrað mig mest frá mér sjálfri því ég hef afneitað sjálfri mér að nánast öllu leyti. Neitaði mér algjörlega að njóta nokkurs skapaðs hlutar. Um leið og ég fór að njóta einhvers þá sá ég til þess með einhverju móti að ég eyðileggði það.

Húmor í depurð og lægð

En í öðru lagi hefur húmor fyrir sjálfri mér haldið í mér lífinu. Ég á ákaflega auðvelt með að sjá spaugilegu hliðarnar á nánast hvaða kringumstæðum sem er. EFTIRÁ nota bene. Eftir að hafa legið í rúminu í þrjá daga í þunglyndiskasti, grenjandi og volandi þá fór ég á endanum á fætur, þvingaði sjálfa mig til að líta til baka, horfa yfir þessa þrjá daga og setja mig aðeins útfyrir kassann og reyna að horfa á sjálfa mig út frá öðru sjónarhorni.

Ég hef nú stundum verið sögð kaldhæðin:

 

Einu sinni hittust feitur maður

og mjór á götu. Feiti: „Þegar

maður sér þig heldur maður

að það sé hungursneið í landinu!"

Mjói: „Já, þegar maður sér

þig heldur maður

að það sé þér að kenna!"

 

- * - * - * - * - * - * -

 

Róni gekk upp að konu á

Laugaveginum. „Ég hef ekki

borðað í fjóra daga!"

Konan leit á rónann og

sagði: „Ég vildi óska

að ég hefði þennan

viljastyrk!" 

 

Vitið þið það, þegar maður er í sjúklegu þunglyndi þá er maður hrikalega fyndinn/hlægilegur/sorglegur, vonandi skiljið þið hvað ég er að meina. Þetta er svo sannarlega ekki meint neikvætt, þvert á móti. Maður er svo uppfullur af ranghugmyndum, fullur af sjálfsásökunum, sjálsmyndin í svo miklu ólagi, sjálfstraustið nákvæmlega ekkert. Maður er í svo rosalegum kassa, sér ekkert út fyrir hann, sér ekkert jákvætt, allt er svo ömurlegt. Jafnvel fyndnustu brandarar eru það leiðinlegasta sem maður veit um. Maður dettur inn í ótrúlega skrýtinn heim sem er fullur af ranghugmyndum. Í raun má segja að ekkert í þeim heimi eigi við rök að styðjast. Maður sér ekkert gott. Jafnvel uppáhaldsmaturinn manns bragðast illa. Brad Pitt er ekki einu sinni sexý!

Dæmigerð niðursveifla hjá mér byrjaði kannski ekki á öðru en því að einhver sem ég bauð góðan daginn, sem gat verið hvar sem er og hver sem er, bauð mér ekki góðan daginn á móti. Hausinn á mér fór á hvolf og ég fór að hugsa allt það versta. Hvað hafði ég gert af mér nú? Gerði ég eitthvað rangt? Djöfull er ég ömurleg! Af hverju bauð hann/hún ekki góðan daginn? Allar þessar ímynduðu hugsanir leiddu svo til þess að ég fór að efast um sjálfa mig og á innan við hálftíma kannski var ég orðin ógeðslega ljót, heimsk, feit, bólugrafin, leiðinleg, frek og Guð má vita hvað. Ég fór í rusli í vinnuna, læddist meðfram veggjum svo enginn myndi nú „þurfa" að verða á vegi mínum af því að ég var svo ógeðsleg. Ég bauð kannski góðan daginn þegar ég mætti, en sagði svo varla aukatekið orð meira allan daginn, nema ég nauðsynlega þyrfti. Og það fyndna er að allan daginn var ég svo sár innan í mér, hugsaði og hugsaði um hvað ég væri ömurleg, enginn vildi tala við mig því ég væri svo leiðinleg, ömurleg, ljót, feit. Blabla. Sat gráti nær og beið eftir því að vinnudagurinn myndi klárast svo ég kæmist heim og gæti lokað og læst og haldið öllum úti. Þá þyrfti enginn að sjá mig.

Svona beisikklí var þetta. Ég kom svo við í búðinni á leiðinni heim, keypti djöfuldóm af einhverju til að borða því ég þurfti að refsa mér fyrir að vera svona ömurleg og þörfin fyrir átköst og uppköst var gríðarleg. Ég hélt svo að allt yrði gott ef ég myndi loka mig af heima, enginn þyrfti að sjá mig né heyra og ég bara næði að verða grönn (sko, ég var grönn, sá það bara ekki sjálf þá, en hef séð myndir eftirá og já, ég var grönn).

Oft entist ég heila vinnuviku í þessum pakka og lá svo heima alla helgina í biluðu þunglyndi. En börnin voru alltaf hjá mér og ég náði mér alltaf á endanum upp. Við vorum miklir félagar og það var gaman hjá okkur þremur saman. Í hvert einasta skipti þegar ég var að rísa upp úr lægð þá gat ég horft yfir dagana á undan og gert á ákveðinn hátt grín að sjálfri mér - ekki neikvætt grín, heldur jákvætt, því það er alveg rosalegt hvað þetta er sjúkt.

Ég veit ekki hvað ég er búin að skrifa margar samtalsbækur í huganum. Þá á ég við samtöl sem ég á við hina og þessa manneskjuna, ímynduð samtöl þar sem ég er að verja sjálfa mig fyrir að vera ömurlega ljót og feit og leiðinleg og asnaleg. Eða ég var að segja kannski mína meiningu, mína skoðun, segja ef mér sárnaði. En ég sagði samt aldrei neitt upphátt. Ég gæti ímyndað mér að þessi bókaflokkur teldi kannski eittþúsund bindi eða svo.

Og vitið þið - þetta er brjálæðislega fyndið. Það er svo fyndið að horfa afturá bak í tímann og velta fyrir sér hvað maður var svakalega ruglaður - en á meðan hugsar maður líka - mikið ofboðslega var ég veik. Ekki hlægilegt, kaldhæðnislega fyndið. Ég get hlegið að sjálfri mér. En að sjálfsögðu myndi ég ekki hlæja að öðrum - þú hlærð að þér, ég hlæ að mér. Þetta er svo ofboðslega mikið rugl. Ég hef reynt að kenna stelpum sem hafa fengið ráðleggingar hjá mér, að hafa húmor fyrir sjálfum sér. Það er mikið atriði að geta haft húmor fyrir sjálfum sér. Jákvæðan og heilbrigðan húmor.

Sveiflurnar eru rosalegar. Sem dæmi um sveiflur þá voru til dæmis föt sem ég hafði keypt í einhverri uppsveiflunni allt í einu orðin svo hryllilega ljót og hálfvitaleg að það var komin þessi fína nýja ástæða til að ásaka sjálfa mig og hakka mig í spað. Hvernig gastu verið svona ógeðslega mikill hálfviti að halda að þú gætir notað svona föt? Hvernig datt þér í hug að kaupa þetta? Og allt eftir því.

Kannist þið við einhverja svona líðan? Að skammast og rífast og niðurlægja ykkur sjálfar út af hverju sem er? Endalaust? Finna nýjar og nýjar ástæður í sjálfsásakanir og niðurrif?

 

Spor í rétta átt

En Sporin í rétta átt verða stigin í smáum skrefum og það er ekkert annað en ögrun á okkur sjálfar. Þegar ég tala um Spor í rétta átt þá má alveg líka tala um bataferli. Spor í rétta átt eru þín spor - í réttu áttina fyrir þig.

Það er ekkert víst að sporin í réttu áttina fyrir mig séu sporin í réttu áttina fyrir þig :)

Spor í rétta átt eru þau spor sem þú ákveður að stíga. Sporin sem þú stígur í áttina frá óreglulegu mataræði, óreglulegri hreyfingu, of stórum matarskömmtum, sporin frá því að hugsa ekki nægjanlega vel um sjálfa þig.

Allt eru þetta spor í rétta átt. Áttina að þinni vellíðan. Því þegar öllu er á botninn hvolft þá erum það víst elskulegu við sjálfar sem þurfum að bera ábyrgðina á því að okkur sjálfum líði vel. Við erum við stjórnvölinn. Það fær sér enginn einu sinni á diskinn fyrir þig og þú nýtur svo ávaxtanna af því. Því miður. Og það er enginn sem getur mætt í ræktina fyrir þig og það eru svo vöðvarnir á þér sem styrkjast. Ohhhh, CRAP! það væri nú samt voða þægilegt ef það væri þannig!

 

Í bata ferlinu mínu las ég nokkur ljóð sem opnuðu augun mín. Ég man ekki hvað stelpan heitir sem skrifaði ljóðin en ég fann þau á http://frontpage.simnet.is/hugskot/  á sínum tíma. Yndislega skemmtilega skrifuð ljóð og ég fann mig algjörlega tilfinningalega í þeim mörgum:

Ósýnilegur                                                   

Þú getur orðið ósýnilegur                               
vegna eigin minnimáttarkenndar.                  

Þú getur hreinlega horfið                               
og misst alla útgeislun.

Þú getur orðið grár og daufur
eins og lítil mús
vegna þinnar eigin
niðurdrepandi skoðunar
á sjálfum þér.

Það tekur enginn eftir þér!
þú skilur ekkert í því!
Þú ert vonsvikinn og hissa,
því enginn veitir þér athygli!

Hvernig eiga aðrir að sjá
það sem alls ekki er til staðar
það sem læðist meðfram veggjum,
laumast út í horn (í hljóðri bæn)
og biðst stöðugt afsökunar á tilveru sinni?

 

Að lokum:

Endilega sendið mér línur kæru konur. Segið mér frá því hvernig ykkur líður og hvernig ykkur gengur.

Ef þið viljið fá viðtal - ekki hika við að biðja um það :)

 

Góða helgi,

knús og kærleikur

Berglind

 

 


Ohhhh :) eða Ohhhh :( Já, lífið er spurning um hugarfar!

Berglind i

Ég opnaði góða spakmælabók í morgun og þar stóð: Ef við fáumst til að viðurkenna að lífið sé erfitt þá skiptir það ekki lengur svo miklu máli". Ég þurfti nú að melta þetta góða stund, spá og spekúlera og komst svo að þeirri niðurstöðu að það er mikið satt til í þessu.

 

Ef við fáumst til að viðurkenna að lífið sé erfitt þá skiptir það ekki lengur svo miklu máli. Við erum oft að velta okkur upp úr líðandi stund og því sem þegar er liðið og gjarnan festumst við þar. Við gleymum að það kemur dagur eftir þennan dag og það sem gerðist í gær er liðið. Lífið er erfitt. En það er ekki erfitt í neikvæðri merkingu ef við kjósum að taka því þannig. Við ráðum okkar eigin viðhorfum. Við vitum það. Við getum ákveðið það þegar við förum framúr á morgnana hvaða viðhorf við ætlum að hafa að leiðarljósi þann daginn.

 

Þótt lífið geti verið erfitt þarf það ekki endilega að þýða það sama og að það geti aldrei verið gaman, þau mál sem upp komi geti aldei verið yfirstíganleg, að okkur sé ekki leyfilegt að eiga glaða daga, að okkur sé ekki leyfilegt að njóta lífsins lystisemda. Leyfum okkur að vera glaðar, hamingjusamar, ánægðar, sáttar, kærleiksríkar og brosmildar og látum hverjum degi nægja sína þjáningu í sátt og í samlyndi við okkar hugarfar.

 

Þótt lífið geti verið erfitt þá er það bara þannig. Tökum lífið í sátt. Viðurkennum að lífið er erfitt á stundum og hvað með það? Hættum endalausu strögli og baráttu við að reyna að hafa lífið okkar fullkomið og sættum okkur við að lífið er ekki dans á rósum. Leyfum því að vera þannig og gerum gott úr því sem gott er! Njótum lífsins og allra þeirra einstaklega góðu stunda sem þar er að finna.

 

Ást og kærleikur

Knús,

Berglind


Ný og dásamleg Rósa-vika

Berglind i

Nú er kominn nýr mánuður og við búnar að vera einn mánuð í heilsurækt. Þessi mánuður er búinn að vera frábær og dásamlegt að sjá allar yndislegu Rósirnar í hverri viku.

Mig langar að ítreka að við erum allar í Rósunum af persónulegum ástæðum þótt við séum hér eflaust allar til að breyta og bæta lífsstíl okkar. Hver og ein okkar hefur einnig sínar sérstöku ástæður fyrir veru sinni í hópnum. Sumum finnst gott að vera í hóp og stunda líkamsrækt. Sumar eru með til að grennast. Enn aðrar eru með til þess eingöngu að hreyfa sig, bæta lífsstílinn og breyta hugarfarinu. Við erum á mismunandi mataræði, þurfum mismikið af fæðu daglega. En við erum allar saman og það gerir hópinn okkar  svo yndislegan.

Ég er ofsalega ánægð með hópinn okkar og það eru svo mikil forréttindi fyrir mig að fá að vera með ykkur. Ég vil byggja hópinn okkar upp af jákvæðni og kærleika. Við erum dásamlegar konur - allar staddar á mismunandi stað í lífinu.

Margar konur hugsa stanslaust um vigtina. Vigtin getur verið okkar helsti óvinur. Ef við einblínum um of á vigtina getur það tafið ferðalag okkar á leið til betra lífs. Við setjum okkur takmark um að léttast um x-mörg kíló fyrir x-langan tíma. Svo kemur að vigtunardegi og vigtin sýnir ekki það sem við viljum sjá. Hvað gerist? Jú, við verðum daprar, leiðar, sjokkeraðar, brjálaðar, vonsviknar og svo framvegis. Þótt við ætlum okkur ekki að verða það - þá gerist það samt. Þessar tilfinningar skjóta upp kollinum jafnvel þótt við vitum að við höfum staðið okkur vel, höfum ekkert svindlað, höfum farið oft í ræktina, höfum misst sentimetra. Samt kemur þessi depurð og þetta vonleysi. Okkur finnst við vera á byrjunarreit. Allt út af einhverjum dauðum hlut sem við stígum á til að sjá einhverja tölu.

En hugsið ykkur! Okkur líður líka svona þótt við vitum að við höfum gert það sem við ætluðum ekki, þótt við höfum ekki mætt í ræktina, ekki borðað hollt, ekki farið eftir markmiðinu. Það kemur sama tilfinningin. Þetta er algjörlega huglægt. Allt er þetta í höfðinu á okkur.

Margir halda að hugsanir komi út frá tilfinningum, en þessu er öfugt farið. Fyrst kemur hugsun - svo koma tilfinningar. Grípum neikvæðar hugsanir áður en þær valda okkur vanlíðan. Grípum jákvæðar hugsanir og nýtum þær til að láta okkur líða vel.

Það skiptir í raun engu máli hvort við erum þetta mörg kíló eða ekki. Okkur þarf að líða vel með okkur sjálfar og finna fyrir ánægju yfir eigin tilveru. Það er algjört grundvallaratriði. Þar byrjum við vinnuna - þaðan getum við síðan farið og gert allt sem við viljum. Út frá eigin vellíðan. Að vera ánægðar með okkur sjálfar.

Af hverju erum við að vera að vigta okkur ef það gefur okkur ekki neitt annað en sársauka? Við þurfum þess einmitt ekki :) Gleymum vigtinni. Horfum í spegil. Að sjálfsögðu getum við vigtað okkur - en látum tölurnar á vigtinni ekki stjórna því hvernig okkur líður.

Ef við sjáum okkur feitar - þá sjá aðrir okkur örugglega feitar, ef við sjáum okkur fallegar - þá sjá aðrir okkur fallegar, ef við brosum framan í heiminn - þá brosir heimurinn framan í okkur.

Finnum okkur góðar og haldbærar jákvæðar rökhugsanir í staðinn fyrir þessar neikvæðu sem eru ekki skynsamar og eiga ekki við rök að styðjast. Þær eiga ekki að vera þarna :)

Setjum okkur það markmið fyrst og fremst að sættast við okkur sjálfar og hugsa jákvætt.  Allt sem við gerum byggist á hugarfarinu. Ég sagði fyrir helgina að jákvæðni væri á sama stað og neikvæðnin - í okkar eigin huglægu fylgsnum - fylgsnum hugans. Það er dásamlegt að lifa og vera í jákvæðni.

Við getum sagt eitthvað fallegt við okkur sjálfar á hverjum degi. Ein mjög góð vinkona mín, sem er að berjast við sjálfa sig þessa dagana skrifaði mér um helgina og sagði:

Ég er minn besti vinur. Ég elska mig eins og ég er og ég stend við bakið á mér þegar ég þarf stuðning, hrós og ást. Ég mun grípa mig þegar ég dett og ég mun vera þar til að rífa mig upp aftur. Ég mun elska mig þrátt fyrir galla og mistök. Ég þarf ekki að sýnast fyrir sjálfri mér. Ég þarf ekki að vera fullkomin - ég er sjálfri mér nóg."

Þetta er akkúrat málið. Við erum sjálfum okkur nóg :)

 

Við erum allar svo einstakar og svo yndislegar. Við vitum þetta en við þurfum að læra að trúa því. Enginn er eins og við. Það er það fallega við lífið.

 

Lífið er alltaf fullt af vandamálum. Það er best að horfast í augu við það og ákveða að vera hamingjusamur þrátt fyrir það.

Mig langar að minna ykkur á að vera óhræddar við að biðja mig eða Fjólu um einkaviðtal ef ykkur langar til að spjalla eða fá ráð.

 

Knús til ykkar yndislegu Rósir og njótið nýrrar viku

Berglind


Fjórar lífsreglur

Berglind i

Vertu flekklaus í orði

Talaðu af heilindum.  Segðu aðeins það sem þú meinar. Passaðu að nota orðið ekki gegn þér eða til að slúðra um aðra. Beindu krafti orða þinna í átt að sannleika og kærleika. 

Ekki taka neitt persónulega

Ekkert sem annað fólk gerir er þín vegna, það sem aðrir segja er speglun af þeirra eigin veruleika og þeirra hugarástandi. Þegar þú hættir að taka skoðanir og gjörðir annarra nærri þér verður þú ekki lengur fórnarlamb ónauðsynlegrar vanlíðunar.  

Ekki draga rangar ályktanir

Hafðu hugrekki til að spyrja spurninga og til að biðja um það sem þú raunverulega vilt. Hafðu samskipti þín við aðra svo skýr að þú komist hjá misskilningi og sárindum. Bara þessi eina lífsregla getur breytt lífi þínu.

Gerðu alltaf þitt besta

Þitt besta mun breytast á hverju andartaki við ólíkar aðstæður. Burtséð frá því hverjar kringumstæðurnar eru, gerðu alltaf þitt besta. Þú munt hætta að fordæma og fara illa með þig og fyllast gleði og sjálfstrausti.


Ný vika – jákvætt hugarfar – betri líðan

Berglind i

Nú er rúmlega vika liðin af námskeiðinu.  

Það er meira en að segja það að drífa sig af stað í ræktina, sérstaklega þegar maður hefur legið í dvala í langan tíma. Andlega hliðin okkar er oft ekki upp á marga fiska og líkamlega erum við ef til vill mjög slæmar.

Það sem er svo gott við Rósirnar, er að allar konurnar koma saman á sínum eigin forsendum, hver og ein með sitt eigið markmið. Hver og ein er í hópnum fyrir sig sjálfa. Við erum allar staddar á mismunandi stað með okkur sjálfar og eigum allar okkar sögu. Sú saga er misjöfn eins og við erum margar. En gleymum því ekki að sameiginlegt markmið okkar allra er þó samt lífsstílsbreyting. Við erum hér allar til að breyta og bæta okkar lífsstíl, bæta okkar andlegu og líkamlegu líðan. Við erum hér til að takast á við mataræði, styrkjast, liðkast og sumar þurfa að léttast - eflaust eru ástæðurnar jafn margar og við erum margar.

Þegar einar dyr lokast opnast aðrar, en við horfum oft svo lengi og með svo mikilli eftirsjá á dyrnar sem lokuðust að við tökum ekki eftir öllum þeim dyrum sem standa opnar.

Við lokuðum einum dyrum þegar við tókum ákvörðun um að breyta um lífsstíl. Við ákváðum að loka dyrunum að lítilli eða engri hreyfingu, óheppilegu mataræði og líkamlegri- og andlegri vanlíðan og  opna í staðinn dyrnar breyttum og bættum lífsstíl. Þær dyr standa galopnar fyrir okkur núna. Við höfum þennan möguleika, þetta val, að fara innfyrir opnu dyrnar og njóta þess sem þar er að finna.

Skrefin sem við þurfum að stíga núna eru lítil og þau eru mörg. Þegar ákvörðun hefur verið tekin um að breyta lífsstíl og taka upp nýja lifnaðarhætti þá verðum við fyrst og fremst að sætta okkur við að „Róm var ekki byggð á einum degi". Þetta tekur tíma og gerist alls ekki fyrsta daginn. Bestur árangur næst með mörgum litlum skrefum, teknum einu í einu.

Grundvöllurinn fyrir því að ná árangri og breyta lífsstíl er Jákvætt Hugarfar og Góð Sjálfsmynd. Við komumst ákaflega langt með jákvæðu hugarfari. Mjög margt sem aflaga fer í lífinu fer á þann veg vegna neikvæðra hugsana okkar og lélegs sjálfsmats.

Það krefst einungis einnar jákvæðrar hugsunar að sigra heilan her af neikvæðum hugsunum! Snertirðu eitt einasta hjarta með gjörð þinni nærðu meiri árangri en þúsund manns sem beygja höfuð sitt í bæn.

Neikvæðar hugsanir eru akkilesarhæll margra. Oft eru þessar neikvæðu hugsanir meira að segja ósjálfráðar. Þær læðast upp að okkur og taka völdin án þess að við gerum neitt til að verjast. En það er hægt að verjast, það er hægt að ná tökum á neikvæðum hugsunum og neikvæðu hugarfari. Með því að vera meðvitaðar og með því að segja alltaf eitthvað jákvætt  í staðinn fyrir þetta neikvæða getum við smám saman breytt hugarfari okkar í jákvæða átt.

Eins og ég sagði í upphafi þá er rúmlega vika búin af námskeiðinu okkar. Mæting hefur verið mjög góð og ég hvet ykkur allar til að vera duglegar að mæta áfram. Leikfimin sem við erum í er mjög fjölbreytt, vel blönduð og mun gefa ykkur mikið. En - eins og venjulega þá veltur árangur á manni sjálfum. Það sem þú leggur inn á reikninginn þinn - það geturðu tekið út með vöxtum. Það er engin verðbólga að þvælast fyrir okkur hér. Við uppskerum bara eins og við sáum.

Það hefur enginn þurft að leiða þig í freistni - þangað hefurðu gengið ein og óstudd.

Breyttu hugsun þinni og þú breytir heimi þínum!

Við förum nú smám saman að taka á mataræðinu. Ágætt að koma hreyfingu að sem sjálfsögðum hlut í okkar lífsins rútínu áður en við höldum af stað í mataræðið. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að það eru ekki allar Rósirnar sem þurfa á ráðleggingum í mataræði að halda, en ég reikna þó með að flestar ykkar vilji stuðning og hvatningu í sambandi við matinn.

Við verðum stöðugt að næra líkamann á því sem hann þarfnast til að endurnýja sig. Góð næring er nauðsynleg og að borða oft og þá minna í einu gefur okkur jafnari blóðsykur og heldur okkur í jafnvægi út daginn. Við öðlumst meiri orku og afköstum meiru. Góð næring er jafn nauðsynleg og góð líkamsrækt. Þegar við nýtum daginn í að borða jafnt og þétt þá höldum við blóðsykrinum í lagi og okkur gengur betur að halda okkur frá sætindum og því að borða of mikið. Löngun í sykur og sætindi minnkar til muna þegar við breytum mataræðinu á þennan hátt. Minnkandi neysla á sykri og sætindum bætir heilsu okkar á allan hátt, minnkar stress, andlega vanlíðan, þreytu, slen, höfuðverk, meltingartruflanir og svona mætti lengi telja. Hæfileg vatnsdrykkja hjálpar einnig mjög mikið til.

Þú munt komast upp á lag með það að njóta. Njóta þess að hreyfa þig og njóta þess að borða. Þú munt læra að setja þér markmið og fara eftir þeim. Það eina sem þú þarft er virkilegur VILJI til að gera það sem þú ætlar þér og þú þarft að TRÚA því að þetta sé hægt.

Breyttan lífsstíl þarf að taka í smáum skrefum og ætla sér ekki um of. Ekki einblína á vigt og málband og það að telja hitaeiningar. Breyttan lífsstíl þarf að skoða með því hugarfari að mæta í ræktina reglulega, borða reglulega - jafnt og þétt yfir daginn, snúa neikvæðum hugsunum yfir í jákvæðar og bæta sjálfsmyndina. Horfa í spegilinn og brosa. Reyndu að borða sem flestan mat og minnka brauðmagn og athugaðu líka að unnar matvörur innihalda oft óæskileg efni. Hafa ber í huga að allur matur inniheldur orku. Það er alveg  sama hvaða matur það er. En við þurfum orku til að lifa. Líttu á þetta þannig að bíll þarf orku til að geta keyrt - líkaminn okkar þarf orku til að geta lifað og starfað eðlilega. Við þurfum orku til að geta sinnt okkar daglegu störfum. Öll umframorka sem innbyrt er breytist í það sem er í daglegu tali kölluð líkamsfita. Með öðrum orðum, það sem gerist er að þessi umframorka sest utan á líkama okkar og veldur okkur vanlíðan og getur á vissum tímapunkti orðið lífshættulegt.

Gott ráð er að skrá niður allt sem borðað er á daginn, þá sérðu hvað þú ert að láta ofan í þig og þú sérð hvenær þú ert að borða og hversu mikið. Þú þarft að finna þína leið - kannski hentar það þér ekki að skrá niður - en prófaðu og athugaðu.

Mig langar til að setja upp nokkra punkta og ég bið ykkur um að hugleiða:

  • Að við erum ekki í megrun og við erum ekki í átaki. Við erum að gera það sem við þurfum að gera til að breyta um lífsstíl í þeim tilgangi að bæta andlega og líkamlega líðan okkar
  • Að það tekur líkama okkar um það bil 21 dag að losna við vana og venja sig að breyttum aðstæðum. 21 Dag. Þolinmæði er dyggð!
  • Að það er mjög gott þegar við byrjum nýjan lífsstíl að huga að eftirfarandi: Þolinmæði - jákvæðni - Bros - Meðvitund
  • Að heilsan er okkar dýrmætasta eign - hugsum vel um heilsuna
  • Að hugsa í lausnum - það eru engin vandamál til, bara lausnir
  • Að það ert ÞÚ sem ert að breyta um lífsstíl fyrir ÞIG og það ert ÞÚ sem uppskerð
  • Að borða EKKI færri en 4-6 litlar máltíðir á dag á tveggja til fjögurra tíma fresti
  • Að fara aldrei svöng í matvörubúð
  • Að taka með nesti í vinnuna (eða í heimsóknir) til að vera undirbúin
  • Að drekka vel af vatni á hverjum degi. Ekki minna en 3-4 glös
  • Að skipuleggja máltíðir fyrirfram og skrá hvað er borðað
  • Að fá sér aðeins einu sinni á diskinn. Undir öllum kringumstæðum
  • Að taka vítamín og bætiefni eftir þörfum
  • Að standa frammi fyrir speglinum hvern dag og brosa mót sjálfri þér J
  • Að segja við sjálfa þig - í dag er dagurinn þegar ég ætla að vera hamingjusöm
  • Að segja við sjálfa þig - hamingjan er ferðalag, ekki áfangastaður
  • Að segja við sjálfa þig - ég er eins og ég er - alveg dásamleg eins og ég er
  • Að passa að fá nægan nætursvefn
  • Að það gerir þetta enginn fyrir þig. Þetta er þitt sköpunarverk og þú nýtur ávaxtanna af erfiðinu J

 

Takk fyrir að lesa :) Njótið dagsins!

Knús

Berglind

 


Saga Öldu - uppbyggjandi lesning

Saga Öldu.

 

Ég heiti Alda og langar að deila með ykkur smá hluta af lífshlaupi mínu sem að ég vona að verði einhverjum sem les hvatning til betra lífs.  Árið 2005 fór ég á námskeið hjá Fjólu ( sem kenndi þá í Baðhúsinu en nú í Mecca Spa )

Ég var mikill þunglyndissjúklingur, fékk kvíðaköst og var mjög félagsfælin allt frá árinu 1997, byrjaði sem fæðingarþunglyndi og endaði með sjálfsvígstilraun.  Ég fór ekki úr húsi, svaraði ekki síma, dró fyrir glugga og var rík af pillum sem varð að pillukokteil, ný skilin enda vart hægt að búa með mér, sjálfsvirðingin farin ásamt öllu öðru. Þegar ég ákvað að fara til Fjólu var sófinn minn helsti staður en ég manaði mig til þessa að stíga skrefið og gleymi ekki þegar ég fór af stað með tárin í augunum, skíthrædd, sveitt og skjálfandi á beinunum. Þetta var að fara með mig og ég hugsaði : Hvað er ég að gera..ég get þetta aldrei !  Ég var allt of þung og mæddist við að ganga upp örfáar tröppur.....og ég var á leið í hopp og hlaup...hélt ég !  

Ég var komin á staðinn og var að snúa við er ég mætti þessari yndislegu konu Fjólu sem brosti fyrir allan heiminn og spurði mig hvort ég væri að koma á námskeið.

Búmm...ég gat ekki snúið við og sem betur fer því ég fullyrði að þetta námskeið gjörsamlega bjargaði lífi mínu.  Byrjunin var erfið og asminn gerði mér erfitt fyrir en erfiðara að hætta þar sem hvatningin, stuðningurinn og jákvæðnin hennar Fjólu efldi mig og hvatti áfram.  Eftir tvö námskeið og fullt hús af verðlaunum var ég orðin lyfjalaus, 16 kílóum léttari og flott kona sem gat allt.  Nú er árið 2010 og í dag hóf ég för með Fjólu og Rósunum hennar og Berglindar í Mecca Spa á ný ( ekkert séð klettinn minn Fjólu í rúm 4 ár ) og hlakka til að takast á við æfingarnar og fjörið sem fylgir með í pakkanum.  Ég er svo þakklát og vona að þessi tjáning mín hjálpi einhverjum sem nú gengur í gegnum myrkur og vill stíga inn í óttann og enda í ljósinu =)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Elísa Berglind Sigurjónsdóttir

Höfundur

Rósirnar heilsurækt, breytt og betri líðan
Rósirnar heilsurækt, breytt og betri líðan
Berglind er leiðbeinandi hjá Rósunum heilsurækt, Hátúni 12, Reykjavík. Hægt er að koma á tvö námskeið hjá Rósirnar heilsurækt: Breytt og betri líðan (BBL)og Zumba/lates. BBL er lokað námskeið. Þetta er hópur kvenna sem vill breyta og bæta sína líðan og setja sig sjálfar í fyrsta sæti. Zumba/lates er byggt upp þannig að fyrstu 30-35 mínúturnar er Zumba og styrktaræfingar úr fit-pilates prógramminu teknar í restina. Frábær námskeið! Leitaðu upplýsinga! e.berglind@simnet.is
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Spurt er

Hefur þú prófað fit pilates?

Nýjustu myndir

  • auglýsing 10092011
  • konulíkami IIII
  • konulíkami III
  •  MG 4782(20x25)
  • MECCA II

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband