Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011

Vertu þátttakandi í eigin lífi

"Í febrúar 2005 var ég greind með flogaveiki eftir að hafa legið milli heims og helju á Borgarspítalanum. Búin að fara 4 sinnum á tveim mánuðum með sjúkrabíl vegna flogakasta. Ég var ennþá í bullandi átröskun þarna. En viðurkenndi það samt ekki. Gat ekki viðurkennt það. Ég skammaðist mín niður fyrir öll velsæmismörk. Það eina sem komst að hjá mér var að ég vildi verða mjó. Ég hélt að öll mín vandamál myndu leysast bara við það eitt að verða mjó. Allir myndu taka mig í sátt og öllum myndi líka við mig."

Þetta er brot úr pistli sem ég skrifaði fyrir ári síðan. Þarna var ofboðslega veikum einstaklingi lýst. En hafið þið pælt í því hvað það er margt fólk sem ekki er skilgreint veikt af átröskun,  sem hugsar samt akkúrat svona? Ég verð svo sorgmædd þegar ég heyri einstaklinga í kringum mig tala stanslaust um hvað allt verði betra þegar þessi eða hin bungan verði farin? Bunga sem NOTA BENE sést varla. Allt verður betra þegar viðkomandi verði mjór. Mjórri en hvað? Hvað er mjó? Hvað gerist þegar þú verður mjó/r? Fyllist þá líf þitt af blómum og brosi, hamingju og kraftaverkum?

Ég er svo innilega sammála því að það að vera of þung/ur eða of feit/ur er vandamál. Heilbrigðisvandamál. En það hefur bara ekkert að gera með útlit. Það hefur allt að gera með daglega, andlega og líkamlega líðan fólks, möguleika til hreyfingar, verki um allan líkama. Það hefur líka að gera með áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum, stoðkerfissjúkdómum og margt margt fleira.

Margir þurfa aðstoð við að hefja ferðalagið og inngrip heilbrigðisstofnana geta komið þar að góðu gagni. Það er frábært að slíkt sé möguleiki fyrir þá sem á því þurfa að halda. Margir leita aðstoðar hjá sjálfshjálparsamtökum. Það er alveg yndislegt þegar fólk tekur ákvörðun um að hefja ferðalag til breyttrar og bættrar líðunar og heilbrigðara lífernis.

„Megrun“ „Átaksnámskeið“ „Síðustu kílóin burt“ „Vertu flott í bikini í sumar“

Hversu oft höfum við ekki heyrt slagorð sem þessi þar sem okkur er lofað fullkomnum líkamsvexti á 6 vikum. Fitubrennsla sem aldrei fyrr. Kaupin bara gerast ekki svona á eyrinni. Það er alveg sama hvað þú vilt það mikið.

„Blandaðu þetta duft í vökva og þú færð öll næringarefni sem þú þarfnast“ „Taktu pilluna og þú verður aldrei aftur svöng“

Endalaus loforð frá framleiðendum og seljendum alls kyns dufts, drykkja og pilla vaða yfir okkur. Þú þarft að vera tilbúin/n til að lifa á dufti það sem eftir er ef árangur á að verða einhver. En það er bara ekki þannig sem við vorum gerð. Við eigum að innbyrða mat. Eigum að tyggja annað en fljótandi fæðu eingöngu. Það er alveg sama hversu mikið þú vilt eitthvað annað.

Gullni meðalvegurinn er sennilega vegurinn sem best er að fara. Fáðu þér einu sinni á diskinn, grænmeti í hvert mál, borðaðu að lágmarki 4 sinnum yfir daginn og umfram allt neyttu fjölbreyttrar fæðu. Minnkaðu magn sykurs og mettaðrar fitu. Þetta er ekkert voðalega flókið. Að lokum, ekki láta vigtina segja þér hvernig skapi þú átt að vera í þennan eða hinn daginn. Stígðu ekki oft á vigt, notaðu spegil, málband og föt til að meta árangur ferðalagsins.

Það skiptir öllu máli að finna aðferðina sem gefur okkur einstaklingunum, sem öll erum svo ólík, aðferð sem hleypir birtu og yl inn í lífið okkar, aðferð sem gefur okkur bjartsýni og trú á tilveruna og gerir það að verkum að okkur langar virkilega að lifa og njóta. Aðferð sem byggir á jafnvægi á milli andlegrar uppörvunar, hreyfingar og heilbrigðs mataræðis.

Besti vinur depurðar og skorts á áhuga er hreyfingarleysi.

Það er alveg með ólíkindum hvað mataræði hefur mikið að segja þegar kemur að almennri líðan okkar. Það, að borða reglulega heldur blóðsykrinum í jafnvægi og það heldur geðinu í jafnvægi. Það, að hreyfa sig reglulega bætir ekki bara andlega líðan okkar, heldur styrkir það hjarta og æðakerfi, eykur þol og gefur okkur kraft, eykur úthald, lækkar blóðþrýsting, styrkir vöðvana og áfram mætti telja endalaust.

Tilgangurinn með því að hreyfa sig, stunda líkamsþjálfun og borða hollan mat ætti að vera sá að okkur sem einstaklingum líði vel í þeim líkama sem okkur var úthlutað. Svo einfalt er það. Við getum ekki farið illa með líkamann og haldið að það kosti ekkert. Líkaminn er musteri sálarinnar og ef við ætlum að hugsa vel um líkamann þá verðum við að hugsa vel um sálina líka. Það gerum við með því að þjálfa hvorttveggja samhliða.

Stundaðu heilbrigt líferni fyrir þig á þínum forsendum. Lífið er ferðalag, það er heilbrigt líferni einnig. Þetta er ferðalag sem aldrei tekur enda. Heilbrigt líferni er yndislegt ferðalag sem þú tekur þátt í eingöngu fyrir þig, til að þér líði sem allra best í þeim aðstæðum sem banka uppá í þínu lífi.

Í ferðalaginu muntu upplifa góða tíma en þú munt líka upplifa miður góða tíma. Hvorttveggja er óhjákvæmilegt. Leyfðu þér að gera mistök, ekki refsa þér þótt markmið dagsins í dag hafi ekki gengið eftir. Þú einfaldlega stendur upp og heldur áfram þaðan sem frá var horfið næsta dag. Gær dagurinn er liðin stund, líka það sem gerðist áðan. Þú getur ekki breytt því sem er liðið. Morgundagurinn er ekki kominn. Þú veist ekkert hvað gerist á morgun. En það sem þú getur gert er að hugsa um daginn í dag. Þú getur hugsað um líðandi stund. Núið. Hvernig ætlarðu að bregðast við því sem er að gerast núna. Stattu með þér.

Vertu þátttakandi í eigin lífi – settu þig í forgang.


:)

images

Ekki borða til að gleðja aðra - það endar bara með ósköpum.

Ég las þessa setningu hjá konu á facebook um daginn og finnst algjör snilld.

 

Hversu oft segjum við „já takk" þegar okkur er boðið eitthvað þótt við vitum að það geri okkur ekki gott að fá okkur?

 

Hversu oft þiggjum við sælgæti, kökur, mat, gos, ís án þess að okkur langi nokkuð í?

 

Og ef við veltum fyrir okkur forsendunum fyrir því hvers vegna við þiggjum veigarnar - úff. Við höldum að við séum að gleðja aðra. Oftar en ekki sitjum við svo í súpunni með ákaflega neikvæðar tilfinningar og samviskubit og sjálfsálit í molum.

 

Enginn getur fengið þig til að finnast þú minni máttar án þíns samþykkis. Það hefur enginn leitt þig í freistni - þangað hefurðu gengið ein og óstudd.

 

Þú mátt segja nei takk. Það er þinn persónuréttur. Enginn getur tekið af þér þinn persónurétt.

“Það eina sem þú getur ekki tekið frá mér er það hvernig ég vel að bregðast við því sem þú gerir mér. Það síðasta sem hægt er að svipta mann er frelsið til að velja viðhorf sín í öllum aðstæðum.”

 

Kærleikur

Berglind

 


Þriðjudagur og áfram höldum við :)

Góðan daginn elsku stelpurnar mínar!

Hvað er að frétta? Hvernig hafið þið það á þessum annars fína Drottins degi?

Ráðgátan leyst (fann þetta á netinu um daginn).....

Fyrsta daginn skapaði Guð hundinn. Guð sagði: "Sittu allan daginn við dyrnar á húsinu þínu og geltu að öllum sem ganga inn eða ganga framhjá. Lífshlaup þitt mun verða 20 ár." Þá sagði hundurinn: "Það er alltof langur tími til þess að vera geltandi, hafðu árin frekar tíu og ég gef þér til baka hin tíu." Guð samþykkti þetta.

Annan daginn skapaði Guð apann. Guð sagði: "Skemmtu fólki, framkvæmdu apabrögð og komdu fólki til að hlægja. Lífshlaup þitt mun verða 20 ár". Þá sagði apinn: "Framkvæma apabrögð í tuttugu ár, ég held ekki. Hundurinn gaf til baka tíu og ég ætla að gera það líka." Guð samþykkti það.

Þriðja daginn skapaði Guð kúna. Guð sagði: "Þú þarft að fara út á tún með bóndanum og dvelja þar allan daginn og þjást undir sólinni, svo munt þú eignast kálfa og mjólka þannig að bóndinn geti séð fyrir fjölskyldu sinni. Lífshlaup þitt mun verða 60 ár." Kýrin sagði: "Svo erfitt líf í sextíu ár, gefðu mér frekar tuttugu og ég gef til baka fjörutíu ár." Guð samþykkti það.

Á fjórða degi skapaði Guð manninn. Guð sagði: "Borðaðu, sofðu, leiktu þér, giftu þig svo og njóttu lífsins. Lífshlaup þitt mun verða 20 ár. Þá sagði maðurinn. "Hvað, bara 20 ár? Heyrðu, ég tek mín tuttugu og þau fjörutíu sem kýrin gaf til baka og tíu árin frá apanum og svo tíu árin sem hundurinn gaf til baka, það gera samtals áttatíu ár. Er það í lagi?" "Það er í lagi", sagði Guð.

Svo þarna er kominn skýringin á því hvers vegna við borðum, sofum, leikum okkur og njótum lífsins fyrstu 20 árin, svo þrælum við í sólinni næstu 40 árin til þess að sjá fjölskyldu okkar farborða, svo næstu 10 árin þar á eftir högum við okkur eins og apar til þess að hafa ofan fyrir barnabörnunum og síðustu tíu árin sitjum við á veröndinni og geltum að öllum sem koma eða ganga framhjá.

Þetta var lausn gátunnar um lífið................eða þannig sko.

 

Ég hvet ykkur til að vera duglegar að koma í leikfimina og ekki hika við að senda mér tölvupóst eða hringja í mig ef það er eitthvað sem ég get hjálpað ykkur með eða ef þið viljið spjalla :)

 

Hlakka til að sjá ykkur í kvöld, njótið dagsins og verið góðar við ykkur sjálfar með því að hugsa fallega um ykkur og til ykkar.

 

4 lykilatriði hvers dags:

Þolinmæði - Jákvæðni - Bros - Sjálfsmeðvitund

Vertu þolinmóð - þú breytir ekki líðan og lífsstíl á einum degi. Það verða alltaf nokkur skrefin afturábak, en það er allt í lagi því við vitum að við getum svo vel risið upp aftur og haldið áfram.

Vertu jákvæð - allt sem þú gerir byggist upp á jákvæðu hugarfari. Þú getur haft áhrif á alla þætti lífs þíns með því að byggja upp jákvætt hugarfar og snúa neikvæðum hugsunum upp í jákvæðar hugsanir. Lífsstílsbreyting og heilsuefling er hugarfarsbreyting.

Vertu brosandi - bros smitar. Ef þú brosir til annarra þá er næstum því bókað að þú færð bros til baka. Ef þú brosir framan í eigin spegilmynd um leið og þú lítur í spegil að morgni, þá geturðu haft áhrif á það hvernig dagurinn þinn verður. Ákveddu fyrir þig sjálfa að morgni hvernig dag þú vilt upplifa.

Vertu sjálfsmeðvituð - það að vera meðvituð um sjálfa þig og það sem þú ert að takast á við getur skipt sköpum fyrir þann árangur sem þú munt. Að hafa hugann við markmiðið skiptir máli. Þú sáir, þú uppskerð og þú nýtur ávaxtanna. Þú.

Hafið Gullnu regluna á bak við eyrað:

Borðum flestan mat og sem fjölbreyttastan, fáum okkur einu sinni á diskinn og hreyfum okkur að lágmarki þrisvar í viku!

Kærleikur og ást 

Berglind


Falleg orð frá Rós

Ég er ótrúlega ánægð með þessa tíma sem ég hef notið til fullnustu.

 

Langaði ekki að skrópa þessa þrjá sem ég komst ekki.

 

Núna held ég bara áfram að styrkjast og eflast og grennast og er það allt þér að þakka því þú hvetur mig svo og þær allar hinar fá líka að njóta smá. ha hahaha.

 

Þessi tími er búinn að vera meiriháttar fyrir mig og þakka ég þeim heima oft fyrir jólagjöfina mína sem var þessi tími með þér og hinum konunum.

 

Nú er bara að halda áfram og áfram.

 

Ég hlakka til á hverjum degi að sprikla smá með ykkur.

Bestu kveðjur

Linda Björk.

Hvatning í upphafi mánaðar

Berglind

Góðan daginn elsku stelpurnar mínar,

 

Hvað segið þið gott í dag?

 

Ohhh, tíminn tíminn tíminn. Hann er svo fljótur að líða. Ég setti árið 2011 upp sem ár heilsunnar. Nú eru tveir mánuðir liðnir af árinu og mér finnst árið rétt byrjað. Við erum búnar að skoppa um í ræktinni í heila tvo mánuði. Það er alveg ótrúlegt - en engu að síður SATT.

 

Hvernig er ykkur búið að ganga það sem af er? Eruð þið að ná ykkar markmiðum?

 

Það eru búin að vera mikil veikindi allsstaðar í kringum okkur í vetur og okkar litli hópur hefur ekki farið varhluta af því.

 

Eruð þið nokkuð að gefast upp skvísur? Veikindi mega ekki draga úr okkur löngunina og ákefðina til að halda áfram. Vissulega draga veikindi úr orkunni okkar og það leggst vissulega misþungt á okkur að vera veikar, en ef við höldum einbeitingunni og höfum hugann áfram við raunhæfu markmiðin og litlu skrefin þá er ekkert sem ætti að aftra okkur frá því að snúa til baka í ræktina eftir veikindin. Við þurfum þó að hafa í huga að fara rólega af stað.

ENGA LETI! KickYourAss

Hver hefur ekki upplifað að nenna alls, alls ekki að fara í leikfimina núna, en ákveða svo að drífa sig? Finna svo þessa yndislegu tilfinningu sem fyllir mann þegar tíminn er búinn og endorfínið streymir um líkamann. Ohhh, ekkert er betra.

 

Stelpur - það má ALLTAF finna sér tíma til að rækta líkama og sál. Það getur ekki verið að við séum svo uppteknar að við getum ekki gefið okkur sjálfum þessa mikilvægu gjöf sem hreyfing er! Líkamsrækt á að vera skemmtileg og okkur á að líða vel í ræktinni og staðan er þannig að tilhlökkun ætti að ráða för - ekki skyldurækni, þótt vissulega sé það að hluta til skyldurækni sem rekur mann af stað sérstaklega í upphafi.

 imagesCAV74Z3V

Það eru óteljandi tegundir af hreyfingu til og það ættu ALLIR að geta fundið hreyfingu við sitt hæfi. Ég held að óhætt sé að fullyrða að ALLIR geti fundið hreyfingu við hæfi.

 

Nokkrar ykkar ákváðu í upphafi að vera 3 mánuði - það er einn mánuður eftir af því tímabili. Hvernig væri að nýta sér þann tíma súper vel?

 

Líkamsrækt ætti að vera skemmtileg - ekki síst vegna þess að um leið og við æfum og styrkjum líkamann þá styrkjum við og styðjum andlega líðan.

 

Sjálfsrækt líkama og sálar er ferðalag og uppskeran eða árangurinn fer eftir því hvernig sáningin var. Þú uppskerð eins og þú sáir. Þetta tekur tíma. En veistu - þú nærð árangri.

imagesCA2OIYWZ

Líkami og sál eru að mestu leyti sami hluturinn og hvort tveggja verður að rækta samhliða.

 

Ég hvet konur sem eru að hugsa um að fara að gera eitthvað fyrir sig varðandi rækt á líkama og sál að hætta að hugsa um það og bara fara og framkvæma það :) Á Íslandi er yndisleg flóra fjölbreyttra tækifæra í hreyfingu og líkamsrækt og það er um að gera að finna það sem hentar.

 

Fyrsta skrefið gæti verið að hafa samband við mig - ég get hjálpað ykkur af stað :) e.berglind@simnet.is eða 891-6901

cat_4

Faðmlag, bros og ást     

Berglind


Um bloggið

Elísa Berglind Sigurjónsdóttir

Höfundur

Rósirnar heilsurækt, breytt og betri líðan
Rósirnar heilsurækt, breytt og betri líðan
Berglind er leiðbeinandi hjá Rósunum heilsurækt, Hátúni 12, Reykjavík. Hægt er að koma á tvö námskeið hjá Rósirnar heilsurækt: Breytt og betri líðan (BBL)og Zumba/lates. BBL er lokað námskeið. Þetta er hópur kvenna sem vill breyta og bæta sína líðan og setja sig sjálfar í fyrsta sæti. Zumba/lates er byggt upp þannig að fyrstu 30-35 mínúturnar er Zumba og styrktaræfingar úr fit-pilates prógramminu teknar í restina. Frábær námskeið! Leitaðu upplýsinga! e.berglind@simnet.is
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Spurt er

Hefur þú prófað fit pilates?

Nýjustu myndir

  • auglýsing 10092011
  • konulíkami IIII
  • konulíkami III
  •  MG 4782(20x25)
  • MECCA II

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband