7.4.2010 | 14:02
Nýtt tímabil hjá okkur Rósunum er að hefjast í kvöld :)
Róleg og ljúf leikfimi fyrir stærri konur :) En stærð er afstæð. Allt sem þarf er vilji til að vera með, fúsleiki til að breyta lífsstílnum og löngun til að vera í skemmtilegum félagsskap kvenna sem glíma við sömu vandamál og þú. Það eru allar konur velkomnar.
Forgangsraðaðu sjálfri þér í fyrsta sæti og vertu með okkur - gerðu það besta fyrir sjálfa þig! Mjög margar konur setja sjálfar sig aftarlega í forgangsröð þeirra verka sem vinna þarf á daginn. Flest allt annað kemur á undan. Svo þegar kemur að því að þær ætla að hugsa um sig, þá er dagurinn búinn, orkan búin og viljinn búinn. Góða nótt :/ En þessu geturðu breytt. Staðreyndin er sú að enginn nema þú getur breytt þessu. Með því að stunda reglubundna hreyfingu 3 sinnum í viku gerirðu heilmikið fyrir þig. Styrkir vöðva líkamans, hjarta og æðakerfi, styrkir stoðkerfi líkamans svo eitthvað sé nefnt. Án nokkurs vafa er það svo andlega hliðin sem lyftist upp. Líkaminn framleiðir gleðihormón, endorfín, þegar við hreyfum okkur. Við það eykst með tímanum gleði okkar og jákvæðni, sjálfsstyrkur og sjálfsmynd. Andlega hliðin fær upplyftingu ekki síður en hin líkamlega.
Einstök nálgun á viðfangsefninu, mikil hvatning og utanumhald! Rósirnar vinna út frá jákvæðni, sjálfsmynd, sjálfsstyrkingu, gleði, viðhorfum og hvernig breyta megi neikvæðum hugsunum í jákvæðar. Nokkurs konar hugrænt atferli. Lykill að vellíðan er eigið sjálfsmat og fyrst af öllu þurfum við að byggja upp gott og heilbrigt mat á okkur sjálfum og tilverunni. Byrjum á að breyta hugarfarinu, þar er lykillinn.
Enginn gerir þetta fyrir þig þú gerir þetta sjálf! En það ert líka þú sem uppskerð eins og þú sáir :) og nýtur ávaxtanna.
Fyrsta vikan er frí til prufu :) Sjáumst kl. 18:00 í kvöld.
Endilega hafið samband í e.berglind@simnet.is
Njótið dagsins.
Lúv, Berglind
Um bloggið
Elísa Berglind Sigurjónsdóttir
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Ágúst 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
Tenglar
Mínir tenglar
- Mecca Spa
- Frábært blogg í baráttu við átröskun
- Stúdíó Sóleyjar
- Yoga með Maggý Dásamlegt yoga, Meðgöngu og mömmu yoga.
- Fit - Pilates á Íslandi Frábært æfingaprógramm
- Ragga Nagli Frábær síða full af fróðleik og góðum pistlum
- Umfjöllun um Átröskun hjá Sölva
- Overeaters Anonymous
- Greysheet Anonymous
- Hug-mynd, Hugur/líkami/sál
- Cafe Sigrún
- Góð heilsuræktarhugleiðing
- Hvað er í matnum
- Upplýsingasíða um fæðuofnæmi
- Heimilis uppskriftir
- Heilsubankinn
- MFM Miðstöðin
- Geðhjálp
- Kærleiksvefur Júlla
- Átaksblogg
- Elín Helga Egilsdóttir
Spurt er
Hefur þú prófað fit pilates?
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.